Fotbolti.net
23.02.20 - 05:55
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Ítalska deildin

Ítalía í dag - Lazio heimsækir Genoa

Lazio heimsækir Genoa.

Lazio heimsækir Genoa.

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalski boltinn heldur áfram að rúlla, það eru þrír leikir á dagskránni í dag en þeir áttu að vera sex.
Fyrsti leikur dagsins fer af stað klukkan 11:30 þegar Genoa og Lazio mætast, mikilvægur leikur fyrir heimamenn í fallbaráttunni en leikurinn er hins vegar mikilvægur fyrir gestina í toppbaráttunni.

Torino og Parma eigast við klukkan 14:00, gestirnir eru í betri málum en þeir sitja í 9. sæti með 35 stig, heimamenn í 14. sæti með 27 stig.

Lokaleikur dagsins hefst klukkan 17:00, þá tekur Roma á móti Lecce. Roma í baráttu um Evrópusæti en Lecce í fallbaráttu, þremur stigum frá fallsæti.

Seint í gærkvöldi var tilkynnt að búið væri að fresta þremur leikjum vegna kóróna-veirunnar. Þessum leikjum var frestað: Parma - Atalanta, Verona - Cagliari og Inter - Sampdoria.

Sunnudagur 23. febrúar.
11:30 Genoa - Lazio (Stöð 2 Sport)
14:00 Torino - Parma
17:00 Roma - Lecce

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1628
2Inter10+1325
3Roma10+1824
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone10+1020
7Juventus10+317
8Napoli10+414
9Bologna10+114
10Torino10-213
11Genoa10-413
12Cagliari10-613
13Atalanta10-411
14Lecce10-109
15Parma10-78
16Fiorentina10-88
17Sassuolo10-108
18Monza10-77
19Udinese10-125
20Venezia10-143
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.