Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 23. febrúar 2020 17:32
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Lengjubikar kvenna: Fylkir vann á Selfossi
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Selfoss 0-3 Fylkir
0-1 Stefanía Ragnarsdóttir ('17)
0-2 Sara Dögg Ásþórsdóttir ('52)
0-3 Bryndís Arna Níelsdóttir ('80)
Rautt spjald: Magdalena Anna Reimus ('79)

Einn leikur fór fram í Lengjubikar kvenna í dag, sá leikur fór fram á Selfossi þar sem heimakonur tóku á móti Fylki.

Fyrsta mark leiksins var skorað á 17. mínútu og það gerði Stefanía Ragnarsdóttir fyrir gestina, staðan 0-1 fyrir Fylki í hálfleik.

Þegar seinni hálfleikur var sjö mínútna gamall kom annað mark Fylkis, það gerði Sara Dögg Ásþórsdóttir. Bryndís Arna Níelsdóttir skoraði þriðja mark gestanna á 80. mínútu og staðan 0-3 sem reyndust lokatölur á Selfossi.

Þetta var fyrsti leikur 2. umferðar A-deildar og Fylkir skellti sér á toppinn með sigrinum, Selfoss er hins vegar stigalaust á botninum.
Athugasemdir
banner