Romelu Lukaku, framherji Inter, segir að Robert Lewandowski sé besti leikmaður heims þessa stundina.
Lukaku, sem hefur verið að spila frábærlega með Inter á Ítalíu, leyfði notendum Twitter að spyrja sig spurningar og valdi hann nokkrar til að svara.
Hann var spurður hver væri besti leikmaður heims að hans mati og svarið var Robert Lewandowski, framherji Bayern Munchen.
„Elska dugnaðinn í honum og leikstíl hans. Alvöru atvinnumaður," sagði Lukaku um Lewandowski.
Lewadowski átti ótrúlega ár í fyrra en hann vann fimmuna með Bayern og skoraði 64 mörk í 58 leikjum. Þá var hann valinn besti leikmaðurinn á árlegri verðlaunaafhendingu FIFA í lok síðasta árs.
@lewy_official. Love his work ethic and his game! True professional https://t.co/Xz0Zc2Weg8
— R.Lukaku Bolingoli9 (@RomeluLukaku9) February 23, 2021
Athugasemdir