Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 23. mars 2020 12:30
Magnús Már Einarsson
Sá sterkasti gefur fólki ráðleggingar til að æfa heima
Mynd: Getty Images
Adebayo Akinfenwa, framherji Wycombe í ensku C-deildinni, er líklega sterkasti leikmaðurinn í ensku deildarkeppninni.

Hinn 37 ára gamli Akinfenwa er yfir 100 kíló og hefur í gegnum tíðina vakið athygli fyrir líkamsbyggingu sína.

Akinfenwa er ekkert að gefa eftir en hann hefur skorað tíu mörk í C-deildinni á þessu tímabili.

Þar sem engar æfingar eru í gangi hjá Wycombe vegna kórónuveirunnar þá heldur Akinfenwa sér í formi heima.

Akinfenwa gaf áhorfendum Sky nokkur ráð fyrir heimaæfingu en myndbandið má sjá hér að neðan.

Athugasemdir
banner
banner
banner