Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
   mán 23. maí 2022 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Rebekka Sverrisdóttir: Bjuggumst ekki við þessu
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR vann langþráðan sigur þegar liðið fékk Aftureldingu í heimsókn í botnbaráttu Bestu deildarinnar í kvöld.


Lestu um leikinn: KR 1 -  0 Afturelding

Staðan var markalaus allt þar til á 87. mínútu þegar Marcella Marie Barberic setti boltann í netið fyrir KR, sem er aðeins komið með þrjú stig eftir sex umferðir.

„Við þurftum á þessum sigri að halda, bæði uppá andlegu hliðina og stigasöfnun í deildinni. Við náðum að halda góðum fókus í dag og mættum í þennan leik til að berjast fyrir lífi okkar," svaraði Rebekka þegar hún var spurð hvað skóp sigurinn.

Það eru þjálfaraskipti hjá KR þar sem Jóhannes Karl Sigursteinsson er hættur eftir 9-1 tap í síðustu umferð.

„Við viljum þakka Kalla kærlega fyrir allt sitt starf og hann náttúrulega undirbjó þennan leik með Arnari líka. Við bjuggumst ekki við þessu en við náðum að fókusa á leikinn og þetta hafði ekki áhrif á okkur þannig."

Rebekka talaði að lokum stuttlega um þá leikmenn sem eru að koma til KR frá útlöndum. Nokkrar eru að koma úr bandaríska háskólaboltanum á meðan aðrar eru nýjar í Vesturbæ og komnar á fullt skrið á æfingum með liðinu.


Slapp
banner
banner