Fotbolti.net
23.08.21 - 22:17
Elvar Geir Magnússon

Kórdrengir safna fyrir Einstök börn

Kórdrengir safna fyrir Einstök börn
Canon

Mynd: Raggi Óla

Lengjudeildin
Annað kvöld taka Kórdrengir á móti Þór í Lengjudeildinni og hafa Kórdrengir ákveðið að nota tækifærið og styrkja Einstök börn í kringum leikinn.
Þeir vallargestir sem vilja styrkja þetta góða málefni geta keypt boli á leiknum á morgun.

Einstök börn er stuðningsfélag barna og ungmenna með sjaldgæfa sjúkdóma eða sjaldgæf heilkenni. Félagið var stofnað 13. mars 1997 af foreldrum nokkurra barna en nú hefur félagið stækkað ört og eru hátt í 500 fjölskyldur í félaginu.

Sjá nánar á einstokborn.is

Leikur Kórdrengja og Þórs hefst klukkan 18:00 á Domusnova-vellinum í Breiðholti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.