Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 23. september 2021 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu markið: Benzema lagði boltann fyrir sig með bakinu
Mynd: Getty Images
Real Madrid rúllaði yfir Mallorca er liðin mættust í spænska boltanum í gærkvöldi.

Karim Benzema lék á alls oddi þar sem hann skoraði tvö og lagði önnur tvö upp fyrir Marco Asensio, sem setti þrennu.

Seinna mark Benzema í leiknum hefur þó vakið verðskuldaða athygli. Franski sóknarmaðurinn fær háa sendingu upp völlinn og notar bakið á sér til að taka við knettinum og skapa sér um leið pláss fjarri varnarmönnum Mallorca.

Atvikið má sjá hér fyrir neðan en það er ekki oft sem maður sér sóknarmenn nýta bakið til að leggja boltann fyrir sig.


Athugasemdir
banner
banner
banner