23.10.21 - 18:27
Ívan Guðjón Baldursson
England: Man City reyndist of stór biti fyrir Brighton

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Brighton 1 - 4 Manchester City
0-1 Ilkay Gündogan ('13)
0-2 Phil Foden ('28)
0-3 Phil Foden ('31)
1-3 Alexis Mac Allister ('80, víti)
1-4 Riyad Mahrez ('95)
0-1 Ilkay Gündogan ('13)
0-2 Phil Foden ('28)
0-3 Phil Foden ('31)
1-3 Alexis Mac Allister ('80, víti)
1-4 Riyad Mahrez ('95)
Brighton hefur verið á miklu skriði á upphafi tímabilsins en í dag mættu lærisveinar Graham Potter alltof miklum gæðum er Englandsmeistarar Manchester City kíktu í heimsókn.
Ilkay Gündogan var búinn að skora eftir þrettán mínútur og setti Phil Foden tvennu með stuttu millibili svo staðan var 0-3 í leikhlé.
Man City réði gangi mála í fyrri hálfleik en það ríkti nokkuð jafnræði með liðunum eftir leikhlé.
Alexis Mac Allister minnkaði muninn með marki úr vítaspyrnu á 80. mínútu en nær komust heimamenn ekki. Riyad Mahrez skoraði fjórða mark City í uppbótartíma og eru lærisveinar Pep Guardiola í öðru sæti eftir sigurinn, tveimur stigum fyrir ofan Liverpool sem á leik til góða.
City er aðeins tveimur stigum eftir toppliði Chelsea sem vann 7-0 gegn Norwich í dag.
Brighton er í fjórða sæti, með 15 stig eftir 9 umferðir.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 10 | +10 | 27 |
| 2 | Man City | 10 | +8 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Everton | 10 | +2 | 16 |
| 6 | Liverpool | 9 | +2 | 15 |
| 7 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 8 | Leeds | 10 | +2 | 14 |
| 9 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 10 | Tottenham | 10 | -1 | 12 |
| 11 | Aston Villa | 9 | -3 | 12 |
| 12 | Newcastle | 10 | -3 | 12 |
| 13 | Hull City | 10 | 0 | 11 |
| 14 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 15 | Fulham | 10 | -2 | 10 |
| 16 | Nott. Forest | 10 | -4 | 9 |
| 17 | Coventry | 10 | -9 | 9 |
| 18 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 19 | Crystal Palace | 9 | -12 | 7 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |