23.10.26 - 10:00
Elvar Geir Magnússon
Asía skiptir um skoðun og styður Infantino

Sjeik Salman bin Ibrahim Al Khalifa og Gianni Infantino.

Mynd: EPA

Líkurnar á því að Gianni Infantino nái endurkjöri sem forseti FIFA hafa aukist verulega eftir að formaður asíska fótboltasambandsins lýsti yfir stuðningi við hann.
Sjeik Salman bin Ibrahim Al Khalifa, forseti asíska sambandsins, sagði á þingi þess í Tókýó, þar sem Infantino var viðstaddur, að Infantino fengi fullan stuðning frá sambandinu.

Stuðningsyfirlýsingin er algjör U-beygja en áður hafði Salman undirritað sameiginlegt bréf ásamt forsetum UEFA og CONCACAF þar sem Infantino var gagnrýndur harðlega. Gagnrýnin sneri að misheppnaðri áætlun hans um að selja einkafjárfestum hlut í heimsmeistaramótinu og innviðum FIFA.
„Það kom upp ágreiningur en hann er að baki og við horfum fram veginn. Við í Asíu erum sameinuð í stuðningi okkar við þig, Gianni," sagði Salman á þinginu.
Ásamt þeim stuðningi sem Infantino nýtur í Afríku og Suður-Ameríku gæti yfirlýsing Sheikh Salman reynst lykilatriði til að tryggja honum fjórða og síðasta kjörtímabilið sem forseti FIFA.
Í kosningunum sem fara fram í Rabat í mars munu atkvæðin skiptast þannig: UEFA hefur 55 atkvæði, Afríka 54, Asía 46, CONCACAF 35, Eyjaálfa 11 og CONMEBOL 10.