Fotbolti.net
23.10.26 - 16:59
Elvar Geir Magnússon

Kompany hneig niður á æfingasvæði Bayern

Vincent Kompany.

Vincent Kompany.

Canon

Mynd: EPA

Vincent Kompany, stjóri Bayern München, var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa fallið í yfirlið á æfingasvæði Bayern München í dag.

Að sögn Sky í Þýskalandi er ástand Kompany stöðugt.
„Vincent Kompany þurfti að leita sér læknisaðstoðar á föstudag eftir að hafa fallið í yfirlið á æfingu hjá varaliði FC Bayern,“ segir félagið í yfirlýsingu.

„Kompany mun gangast undir ítarlega skoðun á sjúkrahúsinu og verða þar áfram undir eftirliti. Að svo stöddu mun þjálfarateymi hans sjá um æfingar og leiki.“

Kompany hefur glímt við veirusýkingu undanfarið og gat ekki mætt á fréttamannafund fyrir leikinn gegn Arsenal í Meistaradeildinni í vikunni. Hann var þó nógu hress til að vera í boðvangnum í leiknum sjálfum, sem endaði með 2-2 jafntefli.

Bayern mætir Freiburg í þýsku Bundesligunni á sunnudag.


Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Bayern6+1714
2Dortmund6+714
3Freiburg6+913
4Leverkusen6+713
5Mainz6+410
6Elversberg6+110
7RB Leipzig6+59
8Werder609
9Hamburger6-99
10Augsburg6+48
11Frankfurt6-68
12Köln6-37
13Stuttgart6-26
14Hoffenheim6-36
15Schalke 046-35
16Paderborn6-45
17Union Berlin6-125
18Gladbach6-120
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.