Emre Can, miðjumaður Juventus, er á í viðræðum við Borussia Dortmund samkvæmt frétt Sky í Þýskalandi.
Hinn 26 ára gamli Can hefur einungis byrjað tvo leiki í Serie A undir stjórn Maurizio Sarri og hann var ekki valinn í Meistaradeildarhóp Juventus.
Can vill fá að spila meira til að eiga möguleika á sæti í þýska landsliðinu fyrir EM í sumar.
Can kom til Juventus frá Liverpool sumarið 2018 en hann gæti nú verið á leið til Dortmund.
Athugasemdir