Fotbolti.net
24.01.21 - 13:15
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Ítalía: Arthur og McKennie afgreiddu Bologna

Ítalía: Arthur og McKennie afgreiddu Bologna
Canon

Mynd: Getty Images

<b>Juventus 2 - 0 Bologna</b>
1-0 Arthur ('15)
2-0 Weston McKennie ('71)
Andri Fannar Baldursson var ónotaður varamaður er Bologna heimsótti Ítalíumeistara Juventus í fyrsta leik dagsins í Serie A.

Brasilíski miðjumaðurinn Arthur kom Juve yfir snemma leiks þegar langskot hans fór af varnarmanni, breytti um stefnu og lak í netið.

Juve var með yfirburði en gestirnir frá Bologna sýndu góðar rispur og voru hættulegir.

Leikurinn var opinn þar til á 71. mínútu þegar Weston McKennie tvöfaldaði forystu Juve sem stóð uppi sem sigurvegari, 2-0.

Verðskuldaður sigur Juve en meistararnir eru óvænt í fjórða sæti deildarinnar, sjö stigum eftir toppliði AC Milan en með leik til góða.

Bologna er í neðri hlutanum með 20 stig eftir 19 umferðir.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Inter8+1322
2Lazio8+1122
3Roma8+1318
4Milan8+918
5Como8+717
6Frosinone8+414
7Juventus8+314
8Torino8+213
9Cagliari8-313
10Napoli8+311
11Atalanta8-110
12Lecce8-59
13Bologna8-28
14Sassuolo8-48
15Monza8-37
16Genoa8-77
17Udinese8-94
18Fiorentina8-104
19Parma8-104
20Venezia8-113
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.