Fotbolti.net
24.02.20 - 14:00
Magnús Már Einarsson

Segir kjaftæði að hann hafi rifist við John Terry

Segir kjaftæði að hann hafi rifist við John Terry
Canon

Mynd: Getty Images

Dean Smith, stjóri Aston Villa, segir ekki rétt að hann hafi rifist við John Terry aðstoðarstjóra sinn eftir 2-0 tapið gegn Southampton um helgina.

Asotn Villa er einungis stigi frá falli eftir tapið en liðið átti einungis fjögur skot í leiknum á laugardaginn gegn 28 skotum frá Southampton.
Eftir leikinn fóru af stað sögusagnir um að Smith og Terry hefðu rifist harkalega í leikmannagöngunum eftir leik.

„Þetta er kjaftæði," sagði Smith þegar hann var spurður út í atvikið.

Smith og Terry eru á öðru tímabili sínu saman en Aston Villa mætir Manchester City í úrslitum enska deildabikarsins um næstu helgi.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Man City10+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Leeds10+214
9Bournemouth9+112
10Tottenham10-112
11Newcastle10-312
12Aston Villa9-312
13Hull City10011
14Ipswich Town9-411
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd9-57
19Crystal Palace9-127
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.