mið 24. febrúar 2021 19:57
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spánn: Messi skoraði tvö og Braithwaite lagði upp tvö
Messi skoraði tvö og Braithwaite lagði upp tvö.
Messi skoraði tvö og Braithwaite lagði upp tvö.
Mynd: Getty Images
Barcelona 3 - 0 Elche
1-0 Lionel Andres Messi ('48 )
2-0 Lionel Andres Messi ('69 )
3-0 Jordi Alba ('73 )

Barcelona gekk á lagið í seinni hálfleik gegn Elche þegar liðin áttust við í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Staðan var markalaus eftir fyrri hálfleikinn en leikmaður að nafni Lionel Messi kom Börsungum í forystu snemma í seinni hálfleik eftir hæl-stoðsendingu Martin Braithwaite.

Argentíski snillingurinn skoraði svo annað mark sitt þegar rúmar 20 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma eftir frábæran undirbúning frá Frenkie de Jong. Messi er núna markahæsti leikmaður spænsku úrvalsdeildarinnar með 18 mörk.

Jordi Alba gerði þriðja mark Börsunga á 73. mínútu og aftur lagði Braithwaite upp. Það var síðasta markið í leiknum og lokatölur 3-0 fyrir Börsunga sem eru komnir aftur á sigurbraut eftir tvo leiki í röð án sigurs.

Barcelona fer upp í þriðja sæti deildarinnar með þessum sigri og er liðið núna með 50 stig eftir 24 leiki. Elche er í 18. sæti, fallsæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner