Fotbolti.net
24.03.20 - 14:48
Elvar Geir Magnússon

Harry Kane verður klár þegar enski boltinn fer aftur af stað

Harry Kane verður klár þegar enski boltinn fer aftur af stað
Canon

Mynd: Getty Images

Harry Kane er á góðri leið og verður að öllum líkindum klár í slaginn þegar enska úrvalsdeildin fer aftur af stað. Þessi sóknarmaður Tottenham hefur verið frá vegna meiðsla aftan í læri.

Hann segir að undir venjulegum kringumstæðum ætti hann að vera klár í að æfa af fullum krafti eftir tvær til þrjár vikur.
Ekki er ljóst hvenær keppni í enska boltanum fer aftur af stað en málin verða rædd í næstu viku.

„Ég er á góðri leið. Ég hef lagt mikið á mig og bíð bara eftir því hvað verður um tímabilið. Þetta er skrítið ástand sem enginn hefur upplifað áður," segir Kane.

„Fjölskyldunni minni líður vel og ég æfi af krafti heima. Þetta er rétti tíminn til að standa saman, vera í öryggi og vonandi verður allt í góðu lagi."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.