Fotbolti.net
24.04.19 - 23:44
Ívan Guðjón Baldursson

Emery hefur trú á fjórða sætinu

Emery hefur trú á fjórða sætinu
Canon

Mynd: Getty Images

Arsenal tapaði 3-1 fyrir Wolves fyrr í kvöld og er liðið í fimmta sæti úrvalsdeildarinnar eftir tapið, einu stigi frá Chelsea í Meistaradeildarsæti.
Unai Emery stjóri Arsenal var svekktur að leikslokum en sagði að Meistaradeildarbaráttan sé hvergi nærri búin. Enn eru þrír leikir eftir af tímabilinu og er sá næsti hjá Arsenal afar erfiður, á útivelli gegn Leicester.

„Við vissum að þetta yrði erfiður leikur. Wolves er með mjög sterkt lið varnarlega og snögga sóknarmenn sem er erfitt að eiga við," sagði Emery.

„Við spiluðum vel fyrstu 25 mínúturnar en náðum ekki að skapa mörg færi. Svo hrundi þetta og í hálfleik ákváðum við að byrja nýjan leik eftir leikhlé.

„Úrvalsdeildin snýst um að spila vel yfir 38 leikja tímabil. Í dag erum við vonsviknir en við megum ekki gleyma hvernig staðan var fyrir þremur mánuðum. Við verðum að finna jákvæðnina og ná í Meistaradeildarsæti."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.