Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   þri 24. maí 2022 09:49
Elvar Geir Magnússon
West Ham ræðir við Lingard
Lingard er 29 ára.
Lingard er 29 ára.
Mynd: Getty Images
Samningur Jesse Lingard við Manchester United rennur út í næsta mánuði og West Ham er í viðræðum um að fá hann.

David Moyes hefur reynt að fá Lingard síðan hann lék afskaplega vel fyrir liðið á lánssamningi á síðasta tímabili. Í tveimur síðustu gluggum hafa Hamrarnir reynt að tryggja sér þennan 29 ára leikmann en ekki borið árangur sem erfiði.

Lingard er ósáttur við þá meðhöndlun sem hann hefur fengið hjá Manchester United og ætlar að yfirgefa félagið, þrátt fyrir að nýr stjóri sé að taka við.

Lingard byrjaði aðeins tvo úrvalsdeildarleiki á nýliðnu tímabili og kom ekkert við sögu í fjórum síðustu leikjum United.

Lingard skoraði níu mörk og átti fimm stoðsendingar í sextán leikjum fyrir West Ham þegar hann var á láni á síðasta tímabili. Hann var valinn leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni í apríl 2021.

West Ham mistókst að landa Evrópudeildarsæti og tekur þátt í Sambandsdeildinni á næsta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner