24.07.20 - 21:37
Aksentije Milisic
Ítalía: Milan og Atalanta skildu jöfn

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
<b>Milan 1 - 1 Atalanta</b>
1-0 Hakan Calhanoglu ('14 )
1-0 Ruslan Malinovskiy ('26 , Misnotað víti)
1-1 Duvan Zapata ('34 )

AC Milan og Atalanta áttust við í eina leik kvöldsins í Seríu A deildinni á Ítalíu. Atalanta er í öðru sæti deildarinnar en AC Milan er í baráttu um Evrópusæti.
Hakan Calhanoglu kom heimamönnum yfir með flottu marki beint úr aukaspyrnu. Á 25. mínútu fengu gestirnir vítaspyrnu eftir að VAR skoðaði atvikið. Lucas Biglia braut þá á Ruslan Malinovsky sem fór sjálfur á punktinn en hann lét Gianluigi Donnarumma verja frá sér.
Á 34. mínútu jafnaði Duvan Zapata hins vegar metin fyrir gestina. Meira var ekki skorað og niðurstaðan því 1-1 jafntefli.
Atalanta er fimm stigum á eftir toppliði Juventus en AC Milan er í 6.sæti, fjórum stigum meira heldur en Napoli sem á leik á morgun.