Fotbolti.net
24.07.20 - 12:15
Magnús Már Einarsson

Schmeichel vorkennir De Gea og ver hann af krafti

David De Gea.

David De Gea.

Canon

Mynd: Getty Images

Kasper Schmeichel, markvörður Leicester, hefur komið kollega sínum David De Gea til varnar. De Gea hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir frammistöðu sína að undanförnu.

Leicester og Manchester United mætast í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar þar sem þau berjast um sæti í Meistaradeildinni. Í viðtali við Sky Sports ákvað Kasper að koma De Gea til varnar.
„Þetta getur verið mjög erfitt. Með fullri virðingu fyrir blaðamönunm eða sérfræðingum þá hafi þið aldrei prófað að standa í marki," sagði Schmeichel.

„Ég vorkenni David því hann hefur verið ótrúlega góður í mörg ár og allir markveðrir upplifa það að ganga í gegnum erfiða tíma."

„Það er líka mikil pressa á honum þar sem að það er enskur markvörður að koma upp og hvort sem ykkur líkar það eða ekki þá skiptir það miklu máli þegar enskur markvörður er að koma upp og fjölmiðlamenn byggja þá upp,"
sagði Schmeichel og vísaði þar í Dean Henderson sem er í láni hjá Sheffield United frá Manchester United.

„Ég vona virkilega að leikmaður eins og Dean Henderson, sem hefur átt ótrúlegt tímabil, fái að vaxa áfram. Ég vona að hann fái annað tímabil eða jafnvel tvö hjá Sheffield United, spili eins og hann hefur gert og verði síðan klár."

„Núna er De Gea ennþá heimsklassa markvörður. Þetta er einmannaleg staða og þú mátt ekki gera mistök sem markvörður því þá er þér refsað."

„Munurinn á markvörðum og útileikmönnum er sá að lítil mistök eru áberandi og fólk tekur eftir þeim."

„Útileikmenn þurfa ekki að hafa sama hugarfarið. Það er sagt að við séum ruglaðir og við erum það því að við erum þeir einu esm tökum þessa ábyrgð. Ef að útileikmenn myndu taka svona ábyrgð þá myndum við vera með ótrúlega leikmenn úti um allt."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City6+1118
2Arsenal6+515
3Brighton6+1313
4Brentford6+610
5Everton6+310
6Chelsea6+210
7Leeds6+39
8Hull City6+29
9Liverpool609
10Ipswich Town6-39
11Newcastle508
12Crystal Palace6-37
13Man Utd606
14Nott. Forest6-35
15Aston Villa6-55
16Sunderland6-64
17Bournemouth6-63
18Tottenham6-63
19Coventry5-93
20Fulham6-42
Kasper Schmeichel

Kasper Schmeichel

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.