Fotbolti.net
24.07.26 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Danni Finns ósáttur og hugsar sér til hreyfings

Danni Finns ósáttur og hugsar sér til hreyfings
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daníel Finns Matthíasson, leikmaður Stjörnunnar, er samkvæmt heimildum Fótbolta.net ósáttur með sína stöðu og er opinn fyrir því að kanna aðra möguleika í glugganum.

Hann var í stóru hlutverki framan af tímabili en það hefur verið takmarkað síðasta mánuðinn. Hann byrjaði gegn KR fyrir tæpri viku síðan en þar á undan byrjaði hann síðast gegn ÍBV 21. júní. Hann lék einungis síðustu sjö mínúturnar gegn Ilves í forkeppni Sambandsdeildarinnar í gær.
Daníel (2000) er fjölhæfur örvfættur leikmaður, hann getur bæði leyst stöður í varnarlínunni og svo allar miðjustöðurnar.

Hann skrfiaði í mars undir samning við Stjörnuna sem gildir út næsta tímabil. Hann hefur verið hjá Stjörnunni síðan 2022 en þá skipti hann frá Leikni snemma tímabils.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.