Fotbolti.net
24.09.20 - 13:43
Elvar Geir Magnússon

Zlatan er með veiruna

Zlatan er 38 ára.

Zlatan er 38 ára.

Canon

Mynd: Getty Images

Sænski sóknarmaðurinn Zlatan Ibrahimovic hjá AC Milan hefur greinst með kórónaveiruna.

AC Milan hefur tilkynnt að Zlatan sé komin í einangrun á heimili sínu.

Zlatan fór í skimun eftir að liðsfélagi hans, Leo Duarte, greindist með veiruna.
Báðir leikmennirnir missa af leik gegn norska liðinu Bodö/Glimt í forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld. Alfons Sampsted leikur með Bodö/Glimt.

Zlatan skoraði bæði mörk AC Milan í 2-0 sigri gegn Bologna á mánudaginn. Hann skrifað nýlega undir nýjan eins árs samning við ítalska stórliðið.

Uppfært 14:50:
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.