banner
   lau 24. október 2020 10:40
Aksentije Milisic
Byrjunarlið West Ham og Man City: De Bruyne mættur á bekkinn
Mynd: Getty Images
Manchester City heimsækir West Ham á London leikvanginn í dag og hefst leikurinn eftir tæpa klukkustund. Þetta er fyrsti leikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

David Moyes og lærisveinar hans náðu mögnuðu jafntefli gegn Tottenham í síðustu umferð þar sem liðið var 3-0 undir en jafnaði með þremur mörkum á síðustu tíu mínútum leiksins.

Moyes gerir enga breytingu frá þeim leik og heldur sér við sömu leikmenn.

Man City vann heimasigur á Arsenal um síðustu helgi þar sem Raheem Sterling gerði sigurmarkið. Pep Guardiola gerir tvær breytingar á sínu liði frá þeim leik. Eric Garcia og Ilkay Gundogan kom inn fyrir Nathan Ake og Phil Foden.

Liðin má sjá hér fyrir neðan.

West Ham: Fabianski, Coufal, Balbuena, Ogbonna, Cresswell, Masuaku, Rice (C), Soucek, Fournals, Bowen, Antonio.
(Varamenn: Randolph, Fredericks, Diop, Noble, Lanzini, Yarmolenko, Haller.

Man City: Ederson, Walker, Dias, Garcia, Cancelo, Rodrigo, Gundogan, Bernardo, Mahrez, Sterling (C), Aguero.
(Varamenn: Steffen, Stones, Zinchenko, De Bruyne, Torres, Foden, Palmer.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner