Fotbolti.net
24.10.20 - 20:54
Ívan Guðjón Baldursson

England: Diogo Jota gerði sigurmarkið gegn Sheffield

England: Diogo Jota gerði sigurmarkið gegn Sheffield
Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool 2 - 1 Sheffield Utd
0-1 Sander Berge ('13, víti)
1-1 Roberto Firmino ('41)
2-1 Diogo Jota ('64)
Englandsmeistarar Liverpool tóku á móti Sheffield United í síðasta leik dagsins og úr varð hörkuleikur.

Gestirnir frá Sheffield komust yfir með marki úr vítaspyrnu snemma leiks en vítaspyrnudómurinn er afar umdeildur.

Bæði lið fengu góð færi en það var Roberto Firmino sem jafnaði skömmu fyrir leikhlé. Hann fylgdi skalla Sadio Mane eftir með marki og var staðan 1-1 í hálfleik.

Í seinni hálfleik komust gestirnir nálægt því að taka forystuna aftur áður en Mohamed Salah kom knettinum í netið en ekki dæmt mark vegna rangstöðu. Rúmri mínútu síðar var Diogo Jota búinn að koma heimamönnum yfir með skalla eftir fullkomna fyrirgjöf frá Mane.

Salah komst nálægt því að bæta þriðja markinu við en skot hans endaði í stönginni. Sheffield reyndi að ná í jöfnunarmark en tókst ekki og lokatölur 2-1 fyrir Liverpool.

Liverpool er búið að jafna Everton á toppi deildarinnar með sigrinum, en Everton á leik til góða og er með betri markatölu.

Sheffield er aðeins með eitt stig eftir sex umferðir.

Það getur tekið tíma fyrir stöðutöfluna að uppfærast.
England: Diogo Jota gerði sigurmarkið gegn Sheffield
Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Leeds5+49
6Liverpool5+39
7Everton5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Crystal Palace5-54
16Aston Villa5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.