Gomes, Lookman og Kolo Muani orðaðir við Man Utd - Trossard fær launahækkun - Brownhill í ítalska boltann?
banner
   þri 24. október 2023 17:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Óli Kristjáns tekinn við Þrótti (Staðfest)
Ólafur Kristjánsson.
Ólafur Kristjánsson.
Mynd: Þróttur
Ólafur Kristjánsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Þróttara. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið í dag.

Hann tekur við starfinu af Nik Chamberlain sem var á dögunum ráðinn sem nýr þjálfari Breiðabliks.

Uppfært 17:05: Áður var sagt frá yfirvofandi ráðningu Þróttar og staðfesti félagið í kjölfarið tíðindin.

Ólafur var síðast hjá Breiðabliki sem yfirmaður fótboltamála en honum var sagt þar upp í sumar.

Hann hafði verið orðaður við starf yfirmanns fótboltamála hjá HK en aðalstjórn félagsins er sögð hafa komið í veg fyrir ráðningu á honum vegna skuldastöðu.

Ólafur hefur á sínum þjálfaraferli stýrt Fram, Breiðabliki, Nordsjælland, Randers, Esbjerg og FH. Hann hefur aldrei áður þjálfað kvennalið.

Þróttur hafnaði í þriðja sæti Bestu deildarinnar á nýliðnu tímabili.

Úr tilkynningu Þróttar:
Ólafur á að baki mjög farsælan feril sem leikmaður og þjálfari og lék hér á landi með FH og KR og í Danmörku með AGF þar sem hann lauk ferli sínum sem leikmaður árið 2000, en tók þá við þjálfun hjá félaginu.

Ólafur hefur náð framúrskarandi árangri sem þjálfari, hann tók við Fram árið 2004 þegar hann sneri heim frá Danmörku, gerði karlalið Breiðabliks að bikarmeisturum árið 2009 og Íslandsmeisturum árið eftir. Síðar þjálfaði hann Nordsjælland og Randers í efstu deild, sem og Esbjerg í næst efstu deild í Danmörku og þar á milli FH í efstu deild á Íslandi. Nú síðast var hann yfirmaður knattspyrnumála hjá Breiðabliki.
Ólafur hefur lokið æðstu gráðum í þjálfun og hefur um margra ára skeið kennt á þjálfaranámskeiðum á vegum KSÍ og miðlað af reynslu sinni til annarra þjálfara. Þá hefur han verið fastagestur á heimilum landsmanna í tengslum við útsendingar af stórmótum í knattspyrnum, bæði hjá konum og körlum.

Ólafur mun strax hefja störf hjá Þrótti

„Ráðning Ólafs H. Kristjánssonar sýnir þann metnað sem einkennir allt starf knattspyrnudeildar Þróttar þessa dagana. Með henni stígum við stórt skref og sköpum forsendur til að halda áfram að bæta árangur kvennaliðsins ár frá ári. Ólafur verður frábær viðbót við þann þjálfarahóp sem starfar hjá Þrótti og reynsla hans og þekking á knattspyrnu mun nýtast félaginu vel á fjölmörgum sviðum. Við hlökkum til samstarfsins og vitum að Þróttararsamfélagið allt fagnar þessari ráðningu og þeim stórhug sem hún sýnir," segir Krisjtán Kristjánsson sem er formaður knattspyrnudeildar Þróttar.

„Ég er mjög spenntur að taka við kvennaliði Þróttar sem verið hefur í fremstu röð í íslenskum kvennafótbolta undanfarin ár. Framtíðarsýn Þróttara hefur heillað mig og ég trúi því að við getum gert liðið enn betra en það er í dag. Ég tek við góðu búi og lít á það sem mjög verðugt verkefni að halda áfram þeirri góðu vinnu sem unnin hefur verið í Þrótti," segir Ólafur sjálfur.
Athugasemdir
banner