Fotbolti.net
24.11.24 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Ungur HK-ingur á reynslu hjá Bröndby

Ungur HK-ingur á reynslu hjá Bröndby
Canon

Mynd: HK

HK-ingurinn Marten Leon Jóhannsson er staddur í Danmörku þar sem hann mun æfa með danska úrvalsdeildarfélaginu Bröndby.
Marten Leon er 14 ára gamall markvörður sem spilaði með bæði 4. og 3. flokki HK í sumar.

Hann á að baki 3 landsleiki fyrir U15 ára landslið Íslands.

Á dögunum hélt hann til Danmerkur ásamt Armandas Leskys, þjálfara 3. flokk karla, en Marten mun æfa og spila með unglingaliði Bröndby næstu daga.

Hann mun æfa með U15 og U17 ára liðunum ásamt því að æfa með markmannsþjálfurum U15 og U19 ára liðsins, en auk þess spilaði hann æfingaleik með U17 ára liðinu í gær.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.