Tómas Óli Kristjánsson er gríðarlega efnilegur kantmaður sem þegar er byrjaður að spila með AGF í dönsku úrvalsdeildinni. Hann er fæddur árið 2008 og var keyptur til Danmerkur sumarið 2024 frá Stjörnunni sem er uppeldisfélag Tómasar.
Hann er U19 landsliðsmaður sem á alls að baki 25 leiki fyrir unglingalandsliðin og hefur í þeim skorað níu mörk. Hann hefur komið við sögu í þremur úrvalsdeildarleikjum á tímabilinu og átti stóran þátt í öðru marki liðsins gegn Silkeborg síðasta föstudag.
Hann er U19 landsliðsmaður sem á alls að baki 25 leiki fyrir unglingalandsliðin og hefur í þeim skorað níu mörk. Hann hefur komið við sögu í þremur úrvalsdeildarleikjum á tímabilinu og átti stóran þátt í öðru marki liðsins gegn Silkeborg síðasta föstudag.
Fullt nafn: Tómas Óli Kristjánsson
Gælunafn: Tommi, Tommi kungfu
Aldur: 17 ára
Hjúskaparstaða: Lausu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Ætli það hafi ekki verið einhver stórleikur í Bose bikarnum. Man ekki mikið eftir því, því miður.
Uppáhalds drykkur: Ætli það sé ekki íslenska vatnið
Uppáhalds matsölustaður: Það er Forsetinn á Álftanesi, ekkert annað sem kemur til greina
Uppáhalds tölvuleikur: Mikill FIFA maður
Áttu hlutabréf eða rafmynt: Já, er með í Íslandsbanka
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Það eru Draumarnir, geggjaðir þættir.
Uppáhalds tónlistarmaður: Drake
Uppáhalds hlaðvarp: Doc og Blö yfirburða
Uppáhalds samfélagsmiðill: Það er grammið, og svo er ég einn harðasti X maður landsins
Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: Fotbolti.net
Fyndnasti Íslendingurinn: Sveppi krull
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Hi your upcoming appointment with carlsen barbershop is tomorrow, það þarf víst að snyrta þetta hár
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Breiðablik, léttasta spurning dagsins
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Bertrand Traore (í æfingaleik í sumar)
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Tóti, Raggi Trausta, Andrés Logason
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Enginn sem kemur upp í hugann
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Messi
Sætasti sigurinn: Það var Orkumótið 2018, sigur á HK í úrslitum
Mestu vonbrigðin: Það var tap í úrslitum á Helsinki cup í 4. flokki
Uppáhalds lið í enska: Arsenal
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Ég myndi taka Einar Frey Halldórsson úr Þorpinu
Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Benjamín Björnsson
Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Það er Guðmar Gauti leikmaður Fylkis, vel huggulegur
Fallegasta fótboltakonan á Íslandi:
Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Messi ekki spurning
Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Hálfleikurinn er alltof langur, negla þessu niður í 10 mín.
Uppáhalds staður á Íslandi: það er held ég bara í sundi, í bestu laug landsins í Garðabænum.
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Það var í 5. flokki á móti KR, ég fer á punktinn, klikka, þeir keyra í skyndisókn og ég brýt á mér hinum megin og þeir fá víti. Þessu verður seint gleymt.
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Nei, get ekki sagt það
Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Já það er Stjarnan í körfunni, og svo pílan um jólin.
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Adidas f50
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: er slappur í flestu því miður, en ætli það sé ekki stærðfræðin.
Vandræðalegasta augnablik: Það er ekkert sem kemur upp í hugann
Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: ég myndi bjóða Sveinbirni Jóhannssyni og Gabríel Veigarssyni leikmönnum Stjörnunnar og svo Ebere Eze, það væri einungis talað um þrennuna hans gegn Tottenham. Þetta matarboð færi í sögubækurnar.
Bestur/best í klefanum og af hverju: Sverrir Páll og Einar Freyr, Þórsararnir hafa verið helvíti skemmtilegir í yngri landsliðunum. Þeir fá þennan titil.
Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Myndi henda Einari Frey og Gunnari Olsen í Love Island, Þeir myndu báðir blómstra þar og fitta helvíti vel inn í stemninguna í þeim þætti.
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Skýt með vinstri í körfubolta en tek layup með hægri
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Enginn sem mér dettur í hug
Hverju laugstu síðast: Maður er stanslaust ljúgandi, man ekkert hvað það síðasta var
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: Sendingaræfing
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Myndi spyrja Arteta af hverju hann er með Skelly í frystikistunni
Athugasemdir



