Fotbolti.net
25.01.20 - 16:29
Ívan Guðjón Baldursson

Þýskaland: Leipzig tapaði - Alfreð kom við sögu

Frankfurt hafði betur gegn toppliðinu.

Frankfurt hafði betur gegn toppliðinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Topplið RB Leipzig tapaði óvænt gegn Eintracht Frankfurt í þýska boltanum í dag. Leipzig sýndi mikla yfirburði í leiknum en tókst ekki að koma knettinum í netið.
Leikið var í Frankfurt og áttu heimamenn eina marktilraun í fyrri hálfleik á móti tólf tilraunum gestanna.

Almamy Toure kom Frankfurt yfir með stórglæsilegu marki í upphafi síðari hálfleiks. Toure var með mikið pláss fyrir utan teig þegar hann fékk skoppandi sendingu frá Marcus Hinteregger og smellhitti knöttinn sem fór upp í vinkilinn. Óverjandi fyrir Peter Gulacsi.

Leipzig blés til sóknar eftir markið en varnarleikur Frankfurt var góður og skyndisóknir heimamanna hættulegar. Undir lok uppbótartímans innsiglaði Filip Kostic sigur Frankfurt með marki eftir slæm mistök í vörn Leipzig.

Frankfurt 2 - 0 RB Leipzig
1-0 Almamy Toure ('48)
2-0 Filip Kostic ('94)

Alfreð Finnbogason fékk að spreyta sig síðasta stundarfjórðunginn er Augsburg tapaði fyrir nýliðum Union Berlin. Alfreð er nýkominn úr meiðslum.

Augsburg er sex stigum frá fallsvæðinu, með 23 stig eftir 19 umferðir.

Samúel Kári Friðjónsson var þá ónotaður varamaður er nýliðar Paderborn komu á óvart og höfðu betur á útivelli gegn Freiburg.

Leikurinn var opinn og fjörugur og spiluðu gestirnir síðasta hálftímann manni færri.

Paderborn er í næstneðsta sæti deildarinnar, þremur stigum frá öruggu sæti.

Alassane Plea var þá hetja Borussia Mönchengladbach þegar hann skoraði tvennu í sigri gegn Mainz og þá gerði Dodi Lukebakio sigurmark Hertha Berlin á útivelli gegn Wolfsburg.

Gladbach er í öðru sæti eftir sigurinn, tveimur stigum eftir Leipzig.

Stórleikur FC Bayern og Schalke hefst klukkan 17:30.

Union Berlin 2 - 0 Augsburg
1-0 Neven Subotic ('47)
2-0 Marcus Ingvartsen ('61)

Gladbach 3 - 1 Mainz
0-1 Robin Quaison ('11)
1-1 Alassane Plea ('24)
2-1 Alassane Plea ('76)
3-1 Florian Neuhaus ('87)

Wolfsburg 1 - 2 Hertha Berlin
1-0 Admir Mehmedi ('68)
1-1 Jordan Torunarigha ('74)
1-2 Dodi Lukebakio ('90)

Freiburg 0 - 2 Paderborn
0-1 Christopher Antwi-Adjej ('48)
0-2 Abdelhamid Sabiri ('83, víti)
Rautt spjald: Jamilu Collins, Paderborn ('59)

Alfreð kom við sögu eftir leiðinleg meiðsli.

Alfreð kom við sögu eftir leiðinleg meiðsli.

Canon

Mynd: Getty Images

Alassane Plea var hetja Gladbach.

Alassane Plea var hetja Gladbach.

Canon

Mynd: Getty Images

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Augsburg000
1Borussia D.2+56
2Bayern2+46
2Bayer000
3Bayern000
3Hamburger2+36
4Borussia D.000
4Borussia M.2+14
5Borussia M.000
5Hoffenheim2+14
6Eintracht Frankfurt000
6Freiburg2+14
7Elversberg000
7Schalke 041+23
8Freiburg000
8Hannover1+13
9Hertha203
9Hamburger000
10Hoffenheim000
10Stuttgart2-13
11Koln000
11Wolfsburg2-23
12Augsburg2-11
12Mainz000
13Paderborn000
13Eintracht Frankfurt2-11
14RB Leipzig000
14Bayer2-21
15Schalke 04000
15Mainz2-20
16Wolfsburg34-2429
16Koln2-30
16Stuttgart000
17Union Berlin000
17Heidenheim34-3126
17RB Leipzig2-30
18Werder000
18Werder2-30
18St. Pauli34-3126
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.