Fotbolti.net
25.01.21 - 15:11
Elvar Geir Magnússon

Meslier búinn að jafna sig

Illan Meslier.

Illan Meslier.

Canon

Mynd: Getty Images

Newcastle og Leeds mætast annað kvöld klukkan 18:00 á St. James' Park. Marcelo Bielsa, stjóri Leeds, sagði á fréttamannafundi í dag að markvörðurinn Illan Meslier væri klár í slaginn að nýju.

Meslier hefur ekki spilað síðustu tvo leiki Leeds vegna veikinda en liðið hefur tapað þremur leikjum í röð.

Kiko Casilla hefur staðið í markinu í fjarveru Meslier og verið í brasi, sérstaklega í tapinu gegn Crawley í bikarnum.
Robin Koch og Gaetano Berardi eru enn fjarverandi og Diego Llorente er ekki orðinn leikfær.

Hjá Newcastle er Javier Manquillo tæpur. Federico Fernandez, Ciaran Clark og Paul Dummett eru allir frá.

Allan Saint-Maximin er mættur aftur eftir meiðsli en hann kom af bekknum í tapi Newcastle gegn Aston Villa á laugardaginn.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Man City10+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Everton10+216
6Liverpool9+215
7Brentford9+714
8Leeds10+214
9Bournemouth9+112
10Tottenham10-112
11Aston Villa9-312
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town9-411
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd9-57
19Crystal Palace9-127
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.