Fotbolti.net
25.02.20 - 10:00
Magnús Már Einarsson

Ki Sung-yueng til Mallorca (Staðfest)

Ki Sung-yueng til Mallorca (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Real Mallorca hefur fengið miðjumanninn Ki Sung-yueng í sínar raðir út tímabilið.

Ki yfirgaf herbúðir Newcastle í janúar og gat því samið við Mallorca núna þó að félagaskiptaglugginn sé lokaður.

Þessi 31 árs gamli Suður-Kóreumaður var í stóru hlutverki hjá Swansea frá 2012 til 2018 áður en hann fór til Newcastle.

Hann fann sig ekki í Norður Englandi og spilaði mjög lítið með Newcastle.

Framundan hjá Mallorca er hörð fallbarátta en liðið er í 18. sæti í spænsku úrvalsdeildinni í augnablikinu.

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona11+3430
2Atletico Madrid11+1428
3Real Madrid11+1827
4Betis11+323
5Real Sociedad11019
6Sevilla11-217
7Athletic10+415
8Villarreal11012
9Celta11012
10Alaves11-212
11Vallecano10-512
12Getafe11-812
13Deportivo10011
14Espanyol11-111
15Osasuna10-1011
16Racing Santander11-1411
17Elche11-410
18Levante11-510
19Valencia11-99
20Malaga11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.