Fotbolti.net
25.03.26 - 14:00
Elvar Geir Magnússon

Ísland hefur aldrei tapað gegn Kanada

Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði í 1-1 jafntefli Íslands og Kanada 2007.

Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði í 1-1 jafntefli Íslands og Kanada 2007.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Eimskip
Kanada og Ísland mætast í vináttulandsleik klukkan 17 að íslenskum tíma í Toronto á laugardaginn. Leikurinn fer fram á BMO Field leikvanngum en þar verður keppt á HM í sumar.
KSÍ fjallar um það í aðdraganda leiksins að Ísland og Kanada hafa fjórum sinnum áður mæst í A-landsliðum karla og í öllum tilfellum hefur verið um vináttuleiki að ræða.

Tvisvar hafa liðin skilið jöfn og tvisvar hefur Ísland fagnað sigri. Þrír leikjanna hafa verið í janúarglugga og því ekki á opinberum landsleikjadögum.

Fyrst mættust liðin á Laugardalsvelli árið 2007 og gerðu 1-1- jafntefli þar sem Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði mark Íslands. Hörður Snævar Jónsson textalýsti leiknum hér á Fótbolta.net:

   22.08.2007 19:06
ÍSLAND 1 - 1 KANADA: Leik lokið

Því næst léku liðin tvo leiki í Flórída í janúar 2015 þar sem Ísland vann fyrri leikinn 2-1 (mörk Íslands skoruðu Kristinn Steindórsson og Matthías Vilhjálmsson) og 1-1 jafntefli (mark Íslands skoraði Hólmbert Friðjónsson) var niðurstaðan í seinni leiknum.

Sjáðu svipmyndir úr seinni leik Íslands og Kanada
TENGT EFNI

Sjáðu svipmyndir úr seinni leik Íslands og Kanada


Loks mættust liðin í Kaliforníu í janúar 2020 og þar vann íslenska liðið 1-0 sigur með marki frá Hólmari Erni Eyjólfssyni.

Sjáðu allt það helsta úr leik Íslands og Kanada
TENGT EFNI

Sjáðu allt það helsta úr leik Íslands og Kanada


Næsta þriðjudag mun Ísland svo mæta Haítí í vináttulandsleik sem einnig verður í Kanada. Ísland og Haíti hafa aldrei áður mæst í A-landsliðum karla og raunar hefur ekkert íslenskt fótboltalandslið áður mætt Haítí.
Ísland hefur aldrei tapað gegn Kanada
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.