Íslenski landsliðshópurinn er allur samankominn í Toronto í Kanada þar sem framundan eru tveir vináttulandsleikir, gegn heimamönnum í Kanada á laugardag og svo gegn Haítí næsta þriðjudag.
Báðir mótherjar okkar í þessum glugga eru að búa sig undir þátttöku á HM í sumar og þó að um æfingaleiki sé að ræða má því búast við því að ekkert verði gefið eftir þar sem leikmenn andstæðingana eru í samkeppni um að spila fyrir þjóð sína á HM.
Báðir mótherjar okkar í þessum glugga eru að búa sig undir þátttöku á HM í sumar og þó að um æfingaleiki sé að ræða má því búast við því að ekkert verði gefið eftir þar sem leikmenn andstæðingana eru í samkeppni um að spila fyrir þjóð sína á HM.
Hitastigið hér í Toronto er að sveiflast í kringum frostmarkið og miðað við veðurspána er möguleiki á snjókomu þegar leikur Kanada og Íslands verður spilaður á laugardaginn.
Á myndum frá fyrstu æfingu íslenska liðsins í Toronto frá því í gær má sjá strákana okkar kappklædda í nöpru loftslaginu.
Allir skilað sér en með smá herkjum þó
Það má segja að dagskrá og undirbúningur íslenska liðsins fari á fulla ferð í dag en leikmenn hafa verið að tínast einn á fætur öðrum í verkefnið.
Brynjólfur Willumsson skilaði sér seinna en til stóð til Toronto þar sem upp komu einhver vandræði með ETA ferðaheimildina sem þarf að fá til að fljúga til Kanada, eins og 433.is fjallaði um.
Þá kom Hjörtur Hermannsson með vél Icelandair í gærkvöldi en hann var kallaður inn í hópinn eftir að Daníel Leó Grétarsson meiddist í leik með félagsliði sínu í Danmörku.
Landsliðsmenn mæta til Toronto
Fótbolti.net er í Toronto
Fótbolti.net er eini íslenski fjölmiðillinn sem fylgir landsliðinu í þessu verkefni og kom til Toronto í gær. Fylgst verður með undirbúningi íslenska liðsins og rætt við leikmenn en fyrstu viðtöl eru væntanleg inn á síðuna í kvöld.
Hvenær eru leikirnir?
Það er fjögurra klukkutíma mismunur á Íslandi og Kanada, leikurinn á laugardaginn verður 13:00 að staðartíma og því klukkan 17:00 að íslenskum tíma. Leikurinn gegn Haíti verður 16:30 á þriðjudaginn að íslenskum tíma.
Frá æfingu í gær
Landsliðshópur Íslands
Elías Rafn Ólafsson - FC Midtjylldand - 13 leikir
Hákon Rafn Valdimarsson - Brentford F.C. - 20 leikir
Anton Ari Einarsson - Breiðablik - 3 leikir
Mikael Egill Ellertsson - Genoa CFC - 27 leikir, 2 mörk
Logi Tómasson - Samsunspor - 13 leikir, 1 mark
Hjörtur Hermannsson - Volos - 28 landsleikir, 1 mark
Hörður Björgvin Magnússon - Levadiakos - 51 leikur, 2 mörk
Sverrir Ingi Ingason - Panathinaikos F.C. - 65 leikir, 4 mörk
Aron Einar Gunnarsson - Al Gharafa-SC - 107 leikir, 5 mörk
Dagur Dan Þórhallsson - CF Montréal - 7 leikir
Guðlaugur Victor Pálsson - AC Horsens - 56 leikir, 5 mörk
Ísak Bergmann Jóhannesson - 1. FC Köln - 41 leikur, 6 mörk
Gylfi Þór Sigurðsson - Víkingur R. - 84 leikir, 27 mörk
Stefán Teitur Þórðarson - Hannover 96 - 34 leikir, 1 mark
Andri Fannar Baldursson - Kasimpasa S.K. - 10 leikir
Kristall Máni Ingason - SK Brann - 6 leikir
Jón Dagur Þorsteinsson - SK Brann - 52 leikir, 6 mörk
Mikael Neville Anderson - Djurgardens IF - 37 leikir, 2 mörk
Arnór Sigurðsson - Malmö FF - 34 leikir, 2 mörk
Brynjólfur Andersen Willumsson - FC Groningen - 7 leikir, 1 mark
Orri Steinn Óskarsson - Real Sociedad - 16 leikir, 7 mörk
Hákon Arnar Haraldsson - LOSC Lille - 28 leikir, 3 mörk
Kristian Nökkvi Hlynsson - FC Twente - 9 leikir, 2 mörk
Athugasemdir


