Fotbolti.net
25.04.21 - 10:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Byrjunarlið Wolves og Burnley: Pope byrjar - Jói á bekk

Byrjunarlið Wolves og Burnley: Pope byrjar - Jói á bekk
Canon

Mynd: Getty Images

Wolves tekur á móti Burnley klukkan 11:00 í ensku úrvalsdeildinni.

Liðin eru bæði í neðri hluta deildarinnar, Wolves í tólfta sæti og Burnley í því sautjánda.

Átta stig skilja liðin að en Burnley er sext stigum fyrir ofan fallsæti. Wolves hefur unnið tvo leiki í röð en Burnley hefur tapað síðustu þremur.
Nuno Santo, stjóri Wolves, gerir eina breytingu frá sigrinum gegn Sheffield United. Joao Moutinho er ekki með og Ruben Neves kemur inn.

Sean Dyche, stjóri Burnley, gerir tvær breytingar á sínu liði. Nick Pope er aftur klár í slaginn í markinu og Matej Vydra kemur inn fyrir Jóhann Berg Guðmundsson.

Wolves: Patricio, Coady, Saiss, Boly, Semedo, Ait Nouri, Neves, Dendoncker, Traore, Podence, Willian Jose.

Burnley: Pope, Lowton, Tarkowski, Mee, Taylor, Brownhill, Westwood, Cork, McNeil, Vydra, Wood.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.