Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
banner
   sun 25. apríl 2021 17:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mjólkurbikarinn: ÍBV, Skallagrímur og Stokkseyri örugglega áfram
Gary og Gaui skoruðu í dag
Gary og Gaui skoruðu í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Úr leik Skallagríms og Álafoss fyrr í vetur
Úr leik Skallagríms og Álafoss fyrr í vetur
Mynd: Hanna Símonardóttir
ÍBV og Stokkseyri eru komin áfram í 2. umferð Mjólkurbikars karla eftir sigra í dag.

ÍBV vann gegn Reyni á Hásteinsvelli. Staðan var 2-0 í hálfleik eftir tvö mörk úr vítapsyrnum en Reynismenn minnkuðu muninn í upphafi seinni hálfleik. Eyjamenn innsigluðu svo sigurinn með mörkum í restina.

Á Bessastaðavelli vann Stokkseyri 0-5 sigur á KFB. Staðan í hálfleik var 0-4 fyrir gestina frá Stokkseyri.

Skallagrímur vann þá Snæfell með fimm mörkum gegn einu á Ólafsvíkurvelli. Skallagrímur komst í 0-4 áður en Snæfell minnkaði muninn en Skallagrímur svaraði fljótlega eftir mark Snæfells og vann 1-5.

Fyrri úrslit í dag:
Vestri skoraði þrjú í seinni gegn Hvergerðingum

KFB 0 - 5 Stokkseyri
0-1 Emil Aron Sigurðsson, sjálfsmark ('10)
0-2 Þórhallur Aron Másson ('11)
0-3 Þórhallur Aron Másson ('24)
0-4 Örvar Hugason ('40)
0-5 Daníel Guðmundsson ('58)

ÍBV 4 - 1 Reynir S.
1-0 Gary Martin, víti ('5)
2-0 Guðjón Pétur Lýðsson, víti ('45+2)
2-1 Kristófer Páll Viðarsson ('52)
3-1 Gonzalo Zamorano ('87)
4-1 Eyþór Orri Ómarsson ('90)

Snæfell 1 - 5 Skallagrímur
0-1 Snorri Kristleifsson
0-2 Hervar Gunnarsson
0-3 Sigurjón Ari Guðmundsson
0-4 Viktor Már Jónasson
1-4 Pawel Kiersznowski
1-5 Fabian Jan Zawiszewski
Rautt spjald: Ástþór Ýmir Alexandersson, Skallagrímur ('31)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner