Ingunn Haraldsdóttir, fyrirliði KR í Lengjudeild kvenna, er að fara til Grikklands þar sem hún er gengin í raðir PAOK.
PAOK er sterkasta félagslið Grikklands og leikur í Meistaradeildinni í sumar.
Þetta er gríðarlega spennandi tækifæri fyrir Ingunni, sem er 26 ára gömul og leikur sem varnarmaaður. Hún hefur spilað með KR frá 2017 og í sumar hefur hún leikið tíu leiki í Lengjudeild kvenna.
Hún er uppalin í Val en hefur einnig spilað með Aftureldingu og HK/Víkingi á sínum ferli.
Í sumar hefur Ingunn spilað tíu leiki í Lengjudeildinni og skorað tvö mörk. KR er á toppi Lengjudeildarinnar með fimm stiga forskot.
Athugasemdir