Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
Birta Georgs: Fannst ég ekki geta hafnað því
Elín Helena: Ein heima að gera mig til fyrir fimmtugsafmæli
Sveindís Jane: Erum ekki að fara vinna þær í því og það er í lagi
Sölvi: Við gerðum okkar og nú vonar maður að þeir geri sitt
Venni: Ef þetta eru lög þá þarf að óska eftir lagabreytingu
Benoný Breki: Ég þarf að halda áfram að vera jákvæður
   sun 25. júlí 2021 22:03
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Víkingsvelli
Toddi: Komumst yfir, erum solid en gefum kannski mörkin
Þorvaldur Örlygsson
Þorvaldur Örlygsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var kaflaskiptur leikur, veðrið hafði mikið áhrif á leikinn í fyrri hálfleik og í seinni hálfleik datt það niður. Við áttum ágætis kafla í fyrri hálfleik, hefðum viljað eiga lengri kafla. Mér fannst við fá tækifæri til að sækja betur á vissum augnablikum. Við komumst yfir og erum solid en gefum kannski mörkin," sagði Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir tap gegn Víkingi í dag.

„Við verjumst vel, erum skipulagðir í því og erum að berjast fyrir stigum og lífi okkar. Við höldum því áfram."

Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 -  2 Stjarnan

Varstu ánægður með það hvernig skiptingarnar heppnuðust?

„Ég er svo sem ekki búinn að velta því fyrir mér. Við fengum meiri hraða og fengum meiri kraft. Þeir komu ágætlega inn en í heildina, yfir leikinn, var margt gott og margt ekki nógu gott enda töpuðum við 3-2."

Toddi sagði þá að lokum að hann eigi ekki von á því að það verði breytingar á leikmannahópi Stjörnunnar á næstunni.

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum að ofan en þar er Toddi meðal annars spurður út í höggið sem Brynjar Gauti Guðjónsson fékk í síðasta leik.
Athugasemdir
banner
banner