Fotbolti.net
25.08.19 - 21:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Túfa: Trúin getur flutt fjöll

Auglýsing
Túfa: Trúin getur flutt fjöll
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er mjög svekktur með úrslitin því við gáfum allt í leikinn í dag," sagði Túfa, þjálfari Grindavíkur, eftir 1-0 tap gegn Víkingum í fallbaráttuslag í Pepsi Max-deildinni í kvöld.
„Mínir strákar gáfu allt í þetta og ég er rosalega svekktur að fara í klefann án þess að fá eitthvað úr leiknum."

„Mér fannst Víkingarnir betri í fyrri hálfleik, þeir komu sterkt inn í leikinn. Akkúrat þegar leikurinn var að opnast fyrir okkur, þá fáum við mark í andlitið sem skilur á milli á endanum."

Grindavík er þremur stigum frá öruggu sæti þegar fjórar umferðir eru eftir. Næsti leikur er gegn fyrrum lærisveinum Túfa, KA í Grindavík.

„Næst hjá Grindavík er að undirbúa næsta leik sem er á móti KA. Með sigri þar erum við aftur í baráttunni. Við ætlum að berjast fram á síðasta dropa."

„Þetta eru allt hörkuleikir sem við höfum verið að spila í sumar. Það hefur vantað herslumuninn. Það eina sem við getum haft er trú. Trúin getur flutt fjöll."

Viðtalið er hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.