Siggi Raggi: Erum virkilega stoltir, þetta er flott afrek

Sigurður Ragnar Eyjólfsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Ragnar Eyjólfsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við erum virkilega stoltir, þetta er flott afrek," sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson eftir tap gegn ÍA í lokaumferð Pepsi Max-deildarinnar.
Keflavík heldur sér uppi og verður einnig í efstu deild að ári.

Keflvíkingar enduðu mótið ekki vel. Þeir náðu 2-0 forystu í dag en enduðu á því að tapa 2-3.
„Við gerðum mjög vel megnið af leiknum. Við hleypum þeim inn í leikinn með klaufalegu marki. Mér fannst að Sindri hefði átt að verja það, en það gefur Skagamönnum von. Svo lágu þeir á okkur með vindinn í bakið. Mér fannst mörkin samt klaufaleg."
„Það er erfitt að mæta þeim. Ég vil óska þeim til hamingju með að ná að halda sér uppi."
ÍA og Keflavík mætast svo í undanúrslitum Mjólkurbikarsins.
„ÍA er fjórða liðið úr Pepsi Max-deildinni sem við mætum. Ef við náum að vinna þá, þá er það bikarúrslitaleikur. Við stefnum þangað," sagði Siggi Raggi.
Allt viðtalið má sjá hér að ofan.