Fotbolti.net
25.10.20 - 22:14
Ívan Guðjón Baldursson

Spánn: David Silva í lykilhlutverki er Sociedad fór á toppinn

David Silva og Mikel Oyarzabal skópu mikilvægan sigur fyrir Real Sociedad í kvöld.

David Silva og Mikel Oyarzabal skópu mikilvægan sigur fyrir Real Sociedad í kvöld.

Canon

Mynd: Getty Images

<b>Real Sociedad 4 - 1 Huesca</b>
1-0 Mikel Oyarzabal ('35, víti)
1-1 Rafa Mir ('46)
2-1 Mikel Oyarzabal ('54)
3-1 Portu ('68)
4-1 Alexander Isak ('75)
Real Sociedad er búið að endurheimta toppsæti spænsku deildarinnar eftir sannfærandi sigur á Huesca í kvöld. Þetta var þriðji sigur Sociedad í röð og er liðið einu stigi fyrir ofan Real Madrid og Granada sem eiga þó leik til góða.

Fyrirliðinn Mikel Oyarzabal skoraði eina mark fyrri hálfleiksins örugglega af vítapunktinum eftir að dæmd var hendi innan vítateigs.

Rafa Mir jafnaði í upphafi síðari hálfleiks með frábærum skalla en átta mínútum síðar var Oyarzabal mættur aftur. Í þetta sinn stangaði hann knöttinn í netið og gaf sínum mönnum forystuna.

Sociedad var við stjórn á þessum tímapunkti og bætti Portu þriðja markinu við eftir frábæran undirbúning frá David Silva sem smeygði sér framhjá tveimur andstæðingum áður en hann gaf boltann. Skömmu síðar innsiglaði sænski sóknarmaðurinn Alexander Isak sigurinn eftir frábæra langa sendingu frá Silva.

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona11+3430
2Atletico Madrid11+1428
3Real Madrid11+1827
4Betis11+323
5Real Sociedad11019
6Sevilla11-217
7Athletic10+415
8Deportivo11+114
9Villarreal11012
10Celta11012
11Alaves11-212
12Vallecano10-512
13Getafe11-812
14Espanyol11-111
15Osasuna11-1111
16Racing Santander11-1411
17Elche11-410
18Levante11-510
19Valencia11-99
20Malaga11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.