Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 25. nóvember 2019 15:17
Magnús Már Einarsson
Guðrún Arnar framlengir við Djurgarden
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Varnarmaðurinn Guðrún Arnardóttir hefur framlengt samning sinn við sænska félagið Djurgarden.

Hin 24 ára gamla Guðrún kom til Djurgarden frá Breiðabliki síðastliðinn vetur.

Djurgarden bjargaði sér frá falli í sænsku úrvalsdeildinni á markatölu á nýliðnu tímabili.

„Það er gott að framlengja samninginn," sagði Guðrún eftir undirskirft.

„Þetta var erfitt á síðasta tímabili og hlutirnir fóru ekki eins og við vildum. Við lærðum mikið af því og ég hef jákvæða tilfinningu fyrir næsta tímabili."
Athugasemdir
banner