fim 25. nóvember 2021 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Jesus: Engin eigingirni í þessu liði
Gabriel Jesus
Gabriel Jesus
Mynd: EPA
Gabriel Jesus, framherji Manchester City, var glaður eftir 2-1 sigurinn á Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni í gær en liðið er búið að vinna riðilinn þegar ein umferð er eftir.

Jesus skoraði seinna mark City í sigrinum í gær eftir sendingu frá Bernardo Silva.

SIgurinn þýðir það að City er á toppnum í A-riðli með 12 stig, fjórum meira en PSG sem er í öðru.

„Ég vil þakka Bernardo fyrir markið. Ég veit að hann býr yfir miklum gæðum og þess vegna beið ég. Ég kláraði færið og legg mitt af mörkum. Ég vil gera þetta í hverjum einasta leik, koma á völlinn og hjálpa. Þetta var frábær sending frá Bernardo þannig ég verð að skora úr því, ekki satt?" sagði Jesus og spurði.

„Við erum með marga leikmenn sem geta hjálpað liðinu og allir vilja gefa góðar sendingar á aðra leikmenn. Það er engin eigingirni í þessu liði."
Athugasemdir
banner