Bayer 3 - 0 Fortuna Dusseldorf
1-0 Kai Havertz ('40 )
2-0 Lars Bender ('79 )
3-0 Lucas Alario ('89 , víti)
1-0 Kai Havertz ('40 )
2-0 Lars Bender ('79 )
3-0 Lucas Alario ('89 , víti)
Meistaradeildarsætisbarátta Bayer Leverkusen lifir góðu lífi en liðið vann Fortuna Dusseldorf 3-0 í þýsku deildinni í kvöld.
Þýski landsliðsmaðurinn Kai Havertz skoraði fyrsta mark leiksins á 40. mínútu og jafnframt fjórða mark hans í deildinni áður en Lars Bender tvöfaldaði forystuna á 79. mínútu.
Tíu mínútum síðar skoraði argentínski framherjinn Lucas Alario þriðja markið úr vítaspyrnu og öruggur sigur Leverkusen í höfn.
Leverkusen er í 5. sæti með 34 stig, aðeins sex stigum frá toppsætinu.
Athugasemdir