Fotbolti.net
26.02.20 - 13:00
Magnús Már Einarsson

Barton: Leikmenn Sunderland fögnuðu eins og þeir hefðu unnið HM

Situr aldrei á skoðunum sínum.

Situr aldrei á skoðunum sínum.

Canon

Mynd: Getty Images

Joey Barton, stjóri Fleetwood, skaut föstum skotum á Sunderland eftir 1-1 jafntefli liðanna fyrir framan 28 þúsund áhorendur á the Stadium of Light í ensku C-deildinni í gærkvöldi.

Max Power jafnaði fyrir Sunderland þegar sjö mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Sunderland er í 4. sæti, þremur stigum á undan Fleetwood sem er í sjöunda.
„Við erum miklu betri en þeir að mínu mati þegar kemur að því að senda boltann. Þeir settu völlinn á flot með vatni yfir daginn því þeir voru hræddir við að gamla góða Fleetwood Town myndi koma og yfirspila þá," sagði Barton.

„Það var virkilega áhugavert fyrir fyrrum leikmann Newcastle að sjá Sunderland, sem var í úrvalsdeild fyrir þremur árum, fagna eins og þeir hefðu unnið HM þegar þeir jöfnuðu í viðbótartíma gegn mögunðu liði Fleetwood Town."

Ísak Snær Þorvaldsson er í láni hjá Fleetwood frá Norwich en hann var ónotaður varamaður í gær.

England 1. deild - karlar

#LiðLmunStig
1Huddersfield13+1628
2Stockport14+1226
3Oxford United12+923
4Luton13+623
5Plymouth14+223
6Reading13+1222
7Bradford13+222
8Cambridge United14021
9Sheff Wed13+820
10Leicester13+319
11MK Dons13+218
12Mansfield Town12+218
13Wycombe13-218
14Leyton Orient13+517
15Burton14-317
16Stevenage12+416
17Notts County12-114
18Wimbledon13-1213
19Blackpool12-412
20Doncaster Rovers13-812
21Wigan13-1110
22Peterboro13-1210
23Barnsley12-109
24Bromley13-209
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.