Fotbolti.net
26.02.21 - 14:00
Elvar Geir Magnússon

Stóri Sam búinn að fá bólusetningu

Stóri Sam Allardyce.

Stóri Sam Allardyce.

Canon

Mynd: Getty Images

Búið er að bólusetja Stóra Sam Allardyce fyrir Covid-19 veirunni og hann hvetur alla til að láta bólusetja sig.

Stóri Sam er stjóri West Brom sem er í erfiðum málum í fallsæti.

„Ég fékk bólusetningu ásamt eiginkonu minni. Ég finn fyrir miklu meira öryggi núna, ekki bara út af mér heldur líka eiginkonu minni," segir hinn 66 ára Stóri Sam.
„Í hreinskilni sagt var ég logandi hræddur við að fá Covid og dreifa veirunni áfram. Þú sérð vandamálin sem hún hefur skapað fyrir fólk. Það er auðveldara fyrir mig að vinna eftir að hafa fengið bóluefnið."

„Ég fer áfram í skimanir tvisvar í viku í gegnum reglur ensku úrvalsdeildarinnar. Ég hvet alla til að láta bólusetja sig."

West Brom á leik gegn Brighton á morgun klukkan 15. Leikur sem West Brom verður að vinna.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.