Fotbolti.net
26.04.21 - 13:30
Elvar Geir Magnússon

Ofurtölva spáir því að Liverpool nái Meistaradeildarsæti

Ofurtölva spáir því að Liverpool nái Meistaradeildarsæti
Canon

Mynd: Getty Images

Sérstök ofurtölva Football Web Pages telur að Liverpool muni ná að enda í topp fjórum í ensku úrvalsdeildinni.

Tölvan notast við tölfræðiútreikninga til að spá fyrir um úrslit þeirra leikja sem eftir eru í deildinni en baráttan um Meistaradeildarsæti er ansi hörð.
Athyglisvert er að tölvan telur að Thomas Tuchel og lærisveinar í Chelsea muni gefa rækilega eftir á lokasprettinum og enda í sjöunda sæti.

Það eru góðar fréttir fyrir Liverpool en útreikningar tölvunnar eru á þá leið að liðið nái Meistaradeildarsætinu á betri markatölu en West Ham.

Spá Ofurtölvunnar:
3. - Leicester - 69 stig (+25 markatala)
4. - Liverpool - 66 stig (+23 markatala)
-----------------------------------------------
5. - West Ham - 66 stig (+15 markatala)
6. - Tottenham - 64 stig (+23 markatala)
7. - Chelsea - 64 stig (+20 markatala)

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City6+1118
2Arsenal6+515
3Brighton6+1313
4Brentford6+610
5Everton6+310
6Chelsea6+210
7Leeds6+39
8Hull City6+29
9Liverpool609
10Ipswich Town6-39
11Newcastle6-38
12Crystal Palace6-37
13Man Utd606
14Coventry6-66
15Nott. Forest6-35
16Aston Villa6-55
17Sunderland6-64
18Bournemouth6-63
19Tottenham6-63
20Fulham6-42
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.