Fotbolti.net
26.05.20 - 08:30
Magnús Már Einarsson

Ný dagsetning á ensku úrvalsdeildina í vikunni

Úr leik í ensku úrvalsdeildinni.

Úr leik í ensku úrvalsdeildinni.

Canon

Mynd: Getty Images

Búist er við að það verði gefið út fyrir lok vikunnar hvenær keppni í ensku úrvalsdeildinni hefst á nýjan leik.

Á morgun funda félög um framhaldið á æfingum og reiknað er mað að samþykkt verði að hefja æfingar í tólf manna hópum þar sem leikmenn mega fara í návígi.
Á fimmtudag er síðan líklegt að staðfest dagsetning verði gefin út á næstu umferð í deildinni.

Leikmenn í deildinni fara reglulega í próf vegna kórónaveirunnar en nokkur félög hafa lýst yfir áhyggjum af því að heilu leikmannahóparnir verði að fara í sóttkví ef að smit kemur upp á æfingu.

Tíu umferðir eru eftir í ensku úrvalsdeildinni og spilað verður þétt þegar keppni hefst að nýju.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City9+1021
2Arsenal8+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool8+315
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Leeds9+111
11Hull City9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.