Fotbolti.net
26.09.20 - 13:34
Ívan Guðjón Baldursson

England: Man Utd með sigurmark eftir að flautað hafði verið af

England: Man Utd með sigurmark eftir að flautað hafði verið af
Canon

Mynd: Getty Images

Brighton 2 - 3 Man Utd
1-0 Neal Maupay ('40, víti)
1-1 Lewis Dunk ('43, sjálfsmark)
1-2 Marcus Rashford ('55)
2-2 Solly March ('95)
2-3 Bruno Fernandes ('100, víti)
Rauðu djöflarnir eru komnir með sín fyrstu stig á nýju úrvalsdeildartímabili eftir heppnissigur gegn Brighton.

Heimamenn voru betri í leiknum og tóku forystuna á 40. mínútu þegar Neal Maupay skoraði úr vítaspyrnu eftir klaufalegt brot Bruno Fernandes innan vítateigs.

Man Utd var ekki lengi að jafna en það gerðist eftir aukaspyrnu. Harry Maguire reyndi að koma knettinum aftur út í teig en hann fór af Lewis Dunk og í netið, ansi óheppilegt sjálfsmark.

Marcus Rashford skoraði í upphafi síðari hálfleiks en markið dæmt af vegna rangstöðu. Skömmu síðar skoraði Rashford aftur og í þetta sinn var engin rangstæða. Frábært mark hjá Rashford sem tætti vörn Brighton í sundur áður en hann skoraði.

Heimamenn tóku aftur völdin á vellinum og fengu mikið af færum en inn vildi boltinn ekki þar til í blálokin, þegar Solly March náði að gera jöfnunarmark á 95. mínútu.

Jöfnunarmarkið var gífurlega verðskuldað en gestirnir frá Manchester voru ekki hættir og fengu vítaspyrnu á 98. mínútu þegar boltinn fór í hendi Neal Maupay innan vítateigs.

Harry Maguire skallaði boltann í hendina á Maupay og vítaspyrna réttilega dæmd.

Chris Kavanagh dómari flautaði leikinn af en hljóp svo að VAR skjánum og dæmdi vítaspyrnu, sem Bruno Fernandes skoraði úr.

Rauðu djöflarnir stálu því sigrinum á 100. mínútu leiksins eftir að hafa verið lakari aðilinn.

Þess má geta að Brighton skaut fimm sinnum í stöng og slá í leiknum.

Man Utd er því komið með þrjú stig eftir tvær umferðir. Brighton er með þrjú stig eftir þrjár umferðir.
England: Man Utd með sigurmark eftir að flautað hafði verið af
Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Tottenham10-112
11Newcastle10-312
12Aston Villa9-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Sunderland10-98
19Man Utd9-57
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.