Fotbolti.net
26.09.20 - 14:56
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Ítalía: Atalanta byrjar nýtt tímabil með fjórum mörkum

Ítalía: Atalanta byrjar nýtt tímabil með fjórum mörkum
Canon

Mynd: Getty Images

<b>Torino 2 - 4 Atalanta</b>
1-0 Andrea Belotti ('11)
1-1 Papu Gomez ('13)
1-2 Luis Muriel ('21)
1-3 Hans Hateboer ('42)
2-3 Andrea Belotti ('43)
2-4 Marten de Roon ('54)
Torino og Atalanta áttust við í fyrsta leik helgarinnar á Ítalíu og úr varð mikil skemmtun eins og gerist oft þegar Atalanta á í hlut.

Heimamenn í Torino komust yfir snemma leiks með marki frá Andrea Belotti en Alejandro 'Papu' Gomez jafnaði tveimur mínútum síðar.

Skömmu síðar gaf Papu Gomez frábæra sendingu innfyrir á Luis Muriel sem kom gestunum yfir.

Gomez lagði þriðja mark Atalanta einnig upp með góðri fyrirgjöf sem rataði á Hans Hateboer en Belotti minnkaði muninn tæpri mínútu síðar með sínu öðru marki.

Staðan var því 2-3 í leikhlé og gerði Marten de Roon fjórða mark Atalanta snemma í síðari hálfleik.

Atalanta var betri aðilinn í seinni hálfleik og verðskuldaði sigurinn.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1628
2Inter10+1325
3Roma10+1824
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone10+1020
7Juventus10+317
8Napoli10+414
9Bologna10+114
10Torino10-213
11Genoa10-413
12Cagliari10-613
13Atalanta9-111
14Lecce10-109
15Sassuolo9-88
16Monza10-77
17Fiorentina9-105
18Parma9-105
19Udinese10-125
20Venezia10-143
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.