Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 26. nóvember 2019 10:04
Magnús Már Einarsson
Simeone: Ekki bara Ronaldo á móti Atletico
Mynd: Getty Images
Diego Simeone, þjálfari Atletico Madrid, segir að liðið muni ekki einunigs einbeita sér að Cristiano Ronaldo í leiknum gegn Juventus í Meistaradeildinni í kvöld.

Ronaldo hefur reynst Atletico Madrid erfiður á ferlinum en hann hefur skorað 25 mörk gegn liðinu í gegnum tíðina.

„Hann spilar alltaf vel gegn okkur. Hann er númer eitt, ótrúlegur leikmaður," sagði Simeone.

„Hann veit alltaf hvernig á að skapa vandamál fyrir andstæðinginn. Ég held að þetta verði ekki bara Ronaldo gegn Atletico Madrid."
Athugasemdir
banner
banner