Martin Terrier, ungur framherji Lyon í franska boltanum, hneig til jarðar í 3-0 sigri gegn Toulouse í gær.
Það var enginn leikmaður nálægt Terrier þegar hann hneig niður á 21. mínútu leiksins. Hann var meðvitundarlaus og fylgdust samherjar hans með skelfdir á svip er Terrier var borinn útaf.
Óttast var það versta en í hálfleik barst staðfesting að blóðþrýstingur Terrier hafði skyndilega lækkað og þess vegna hafi liðið yfir hann.
Karl Toko Ekambi, sem er nýkominn til félagsins, kom inn í hans stað og skoraði síðasta mark leiksins.
Lyon er í fimmta sæti frönsku deildarinnar með 32 stig eftir 21 umferð.
Athugasemdir