Í útvarpsþætti okkar á Fótbolta.net á X977 varpaði ég fram þeirri hugmynd að leggja niður Reykjavíkurmótið í núverandi mynd og breyta því í einn stakan úrslitaleik, búa til létta Ofurbikars stemningu.
Ég hef gaman að því hvað ég hef fengið góð viðbrögð við þessari hugmynd og það frá ýmsum þátttakendum leiksins; leikmönnum, þjálfurum, dómurum og stuðningsmönnum. Enginn hefur rætt við mig sem er algjörlega ósammála hugmyndinni en það væri gaman að heyra í þeim einstaklingi líka!
Ég hef gaman að því hvað ég hef fengið góð viðbrögð við þessari hugmynd og það frá ýmsum þátttakendum leiksins; leikmönnum, þjálfurum, dómurum og stuðningsmönnum. Enginn hefur rætt við mig sem er algjörlega ósammála hugmyndinni en það væri gaman að heyra í þeim einstaklingi líka!
Segjum þetta bara hreint út. Virðing félaganna fyrir þessu móti er algjörlega horfin og það fyrir löngu síðan. Það hefur viðgengst í mörg mörg ár að félögin hafi nánast gefið „skít“ í mótið og vísvitandi teflt fram ölöglegum liðum eða algjörum varaliðum.
Þróttur gerði það fyrir einhverjum árum, KR tefldi fram ólöglegu liði í úrslitaleiknum í fyrra og tapaði því leiknum sem það hafði í raun unnið og Víkingur hefur í þessum mánuði stillt upp ólöglegu liði leik eftir leik.
Ég skil félögin. Á þessum tímapunkti vilja þau nýta leikina sem best til að undirbúa sig fyrir það sem skiptir máli: Mót sumarsins. Auðvitað vilja þau spila á þeim leikmönnum sem eru komnir erlendis frá þó þeir geti ekki fengið keppnisleyfi strax. Liðin eru að undirbúa sig fyrir tímabilið og þar spila þessir menn. Auðvitað vilja þjálfararnir nota janúarmánuð til að eiga möguleika á að skoða leikmenn sem eru til reynslu.
Þó Reykjavíkurmótið hafi í eldgamla daga verið virðulegt mót þá er það bara orðið algjört æfingamót og þeir einstaklingar sem haldnir eru fortíðarþrá verða að horfast í augu við það.
En við viljum halda Reykjavíkurmeistaratitlinum lifandi og það er hægt að gera með glæsibrag. Hugmyndin er sú að tvö efstu Reykjavíkurliðin á Íslandsmótinu mætist í stökum úrslitaleik í janúar um Reykjavíkurmeistaratitilinn. Með alvöru umgjörð verði leikurinn gerður að skemmtilegum viðburði til að mæta á og liðið sem ber sigur úr býtum verður Reykjavíkurmeistari.
Í ár hefði leikurinn verið milli Víkings og Vals, liðanna sem enduðu í 2. og 3. sæti Bestu deildarinnar.
Í stað þess að spila í Reykjavíkurmótinu í janúar geta félögin svo hreinlega bara gert það sem hentar hverju þeirra fyrir sig. Sett á laggirnar æfingamót í líkingu við Þungavigtarbikarinn og gamla Fótbolta.net mótið, leikið æfingaleiki þar sem allir geta spilað, farið út í æfingaferð eða bara hvað sem er.
Ef einhver er ósammála þessari hugmynd þá hlýtur sá aðili samt að taka undir það að eitthvað þarf að gera. Reykjavíkurmótið í núverandi mynd er ekki að virka, hefur ekki gert það í mörg ár, og virðing þess er svo gott sem horfin.
Athugasemdir